Mikilvægt að efla upplýsingar frá skólanum

  Í haust var boðið uppá nýtt valfag fyrir 9. og 10. bekkinga í Árskóla, sem kallast fjölmiðlun. Kennari er Guðný Jóhannesdóttir, ritstjóri Feykis. Nemendur í þessu valfagi eru 6. Við ákváðum að taka viðtal við Óskar, skólastjóra Árskóla og komast að hugmyndinni á bakvið fjölmiðlun.

 

1. Af hverju ákvaðst þú að hafa fjölmiðlun í boði sem val?

„ Af því mér fannst mjög mikilvægt að efla upplýsingar frá skólanum og að nemendur fái að kynnast þessu fagi."

 

2. Við hverju býstu af krökkunum í fjölmiðlun ?

„Ég býst alltaf við hinu besta af nemendum í skólanum og vona að krakkarnir standi sig vel svo þetta fag verði vinsælla á næsta ári."

 

3. Heldur þú að fjölmiðlun sé komin til að vera ?

„Já, ég vona það."

 

4. Ætlar þú að reyna að fá Guðnýju til að kenna aftur á næsta ári ?

„Já, ég ætla að reyna það."

Helga Þórsdóttir & Særós Gunnlaugsdóttir


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband